
Skýr sýn, betra líf!
Hjá Augnlæknum Reykjavíkur starfa sérfræðingar með áratuga reynslu af augnlækningum og hafa sérhæfingu í öllum helstu undirgreinum augnlæknisfræði.
Við höfum hugsað um augnheilsu Íslendinga í áratugi
Augnlæknar Reykjavíkur sinna öllum almennum augnlækningum og bjóða sérhæfingu í helstu undirgreinum augnlæknisfræðinnar, svo sem barnaaugnlækningum, sjónhimnu og augnbotnasjúkdómum, hornhimnusjúkdómum, glákusjúkdómum, augnskurðlækningum, augnlokaaðgerðum og laserlækningum. Skjólstæðingar okkar eru á öllum aldri, hvaðanæfa af landinu.
Sérfræðingar okkar hafa víðtæka reynslu
Tólf sérfræðingar með sérnám frá Norðurlöndum, Bretlandi og Bandaríkjunum. Saman býr hópurinn yfir víðtækri reynslu í almennum augnlækningum og öllum helstu undirgreinum.

Við tökum vel á móti þér
Nýuppgerð aðstaða okkar í Hamrahlíð 17 er björt, hlýleg og tekur vel utan um skjólstæðinga og starfsmenn. Stofan hefur komið sér upp öllum helstu rannsóknar- og meðferðartækjum, sem þörf er á, við greiningu og meðferð augnsjúkdóma.
Viltu bóka tíma?
Tímapantanir eru í síma 551 8181 eða sendu okkur ósk um tíma, með því að smella á hnappin hér fyrir neðan og við svörum eins skjótt og auðið er.











